Vísindafélag Íslendinga var stofnað 1. desember 1918 sem félagsskapur íslenskra vísindamanna á öllum sviðum vísinda með það markmið að efla vísindastarfsemi í landinu og styrkja stöðu vísinda í íslenskri menningu. Félagið hefur starfað undir þeim formerkjum allar götur síðan, óháð stofnunum og þvert á fræðigreinar. Í júní 2019 var nafni félagsins breytt og heitir það nú Vísindafélag Íslands.