Nóbelsverðlaunin í efnafræði 2018

Vísindafélag Íslands stóð 7. nóvember 2918 fyrir fræðsluerindi um Nóbelsverðlaunin í efnafræði 2018. Fyrirlesari var Arna Rúnarsdóttir, lífefnafræðingur hjá ORF líftækni.

Verðlaunin voru veitt fyrir að beisla kraft þróunar (evolution) og skiptust á milli Frances H. Arnold, George P. Smith og Sir Gregory P. Winter. Arnold fékk helming verðlaunanna fyrir stýrða þróun (e. directed evolution) ensíma. Smith og Winter deildu saman hinum helmingnum fyrir að nota „phage display“ aðferðina til að þróa peptíð og mótefni.

Nóbelshafarnir eiga það sameiginlegt að hafa beislað kraft þróunar og nýtt hann í þágu mannkyns. Fjölbreytileiki ensímanna sem hafa farið í gegnum stýrða þróun er mikill, allt frá lífeldsneytahvötum til lyfja. Mótefnin sem þeir Smith og Winter þróuðu með „phage display“ aðferðinni er hægt að nota í baráttunni við sjálfsofnæmissjúkdóma og mögulega til lækninga á meinvörpum krabbameina. Í fyrirlestrinum verður farið í vísindin á bakvið beislun þróunar og mikilvægi þessara uppgötvana útskýrt.

Fundarstjóri:
Snævar Sigurðsson, sérfræðingur hjá Lífvísindasetri Háskóla Íslands