Starfsárið 2018 -2019 gerði Vísindafélagið samstarfssamninga við forsætisráðuneytið og ráðuneyti mennta – og menningarmála um að félagið skyldi standa fyrir röð málþinga um aðkomu vísindanna að samfélagslegum áskorunum þar sem fjallað væri um ýmsar hliðar þeirra verkefna sem samfélagið stendur frammi fyrir vegna fjórðu iðnbyltingarinnar sem og stöðu og mikilvægi vísinda og vísindarannsókna í því samhengi og samfélaginu öllu.
Afrakstur málþinganna var meðal annars skýrsla þar sem gerð er grein fyrir því sem fram kom á málþingunum og er hún nú aðgengileg hér fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér efni hennar.
