Nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2018

Vísindafélag Íslands stóð fyrir fræðslufundi um nóbelsverðlaunahafann í bókmenntum fyrir árið 2018, Olgu Tokarczuk. Fyrirlesarinn, Ewa Marcinek er pólskur rithöfundur sem búsett er á Íslandi. Fyrirlesturinn ber titilinn Olga Tokarczuk. The maps of reality.  

Fundurinn fór fram í Þjóðminjasafninu miðvikudag 30. október 2019.

Pólski rithöfundurinn Olga Tokarczuk hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir árið 2018 en verðlaunin voru ekki afhent í fyrra svo henni féllu þau í skaut í ár. Hún fæddist árið 1962 og telst til merkustu rithöfunda Evrópu. Fyrsta bók hennar kom út árið 1989, ljóðabókin Borgir í spegli en hún vakti fyrst athygli utan Póllands fyrir skáldsöguna Ur og aðrir tímar sem kom út árið 1996. Hún hlaut alþjóðlegu Man Booker verðlaunin 2018 fyrir skáldsöguna Flights.

Skrifum Olgu hefur verið líkt við bútasaumsteppi, þar sem hún blandar saman frásögnum af hversdagslífi, skissum og ritgerðum þar sem söguleg fortíð, samtíð og framtíð er látið speglast í ólíkum tímum sem og stöðugri endurtekningu þeirra gleði og sorga sem mannfólkið upplifir.